Wolt gjafakort
Sendu Wolt gjafakort og leyfðu viðtakandanum að velja það sem hann raunverulega vill hjá veitingastöðum og verslunum í grenndinni. Wolt gjafakort eru afhent samstundis og eru tilbúin til notkunar strax.

Hvað er Wolt gjafakort?
Wolt gjafakort er stafræn gjöf sem þú sendir með örfáum smellum. Sá sem fær kortið getur notað það til að panta af veitingastöðum, úr matvöruverslunum eða öðrum verslunum á Wolt. Veldu útlit, bættu við kveðju og sendu samstundis. Hvort sem það er óvænt glaðningur á lokastundu, þakkarkveðja eða bara af því bara – þá er þetta einföld og sveigjanleg gjöf sem passar við öll tilefni.

Sendu Wolt gjafakort á Íslandi
Sendu stafrænt gjafakort og leyfðu þeim að velja nákvæmlega það sem þau lystir hjá veitingastöðum og verslunum í grenndinni. Gerðu vel við vini og fjölskyldu hvar sem þau eru. Þú getur keypt Wolt gjafakort fyrir hvaða land sem er þar sem Wolt starfar.

Af hverju að velja Wolt gjafakort?
Afhending samstundis
Sendu stafrænt gjafakort með örfáum smellum. Það berst samstundis og er tilbúið til notkunar – fullkomið fyrir gjafir á síðustu stundu eða hugulsaman glaðning.
Alltaf rétta gjöfin
Allt frá sushi og pizzu yfir í fersk blóm og vikuleg matarinnkaup; þau velja nákvæmlega það sem þau vilja – þegar þau vilja það.
Einfalt að senda
Deildu Wolt gjafakortinu þínu samstundis með hlekk eftir kaup. Engin útprentun. Ekkert vesen við að afrita kóða. Bara hröð og einföld afhending.

Gerðu það persónulegt
Veldu útlit og bættu við þinni eigin kveðju til að búa til gjafakort sem er hugulsamt og sérsniðið fyrir þau.
Hvernig á að kaupa Wolt gjafakort
Opnaðu gjafakortaverslunina
Opnaðu Wolt og skráðu þig inn á aðganginn þinn. Í Wolt-appinu ferðu í Prófíll → Kaupa gjafakort, eða heimsækir Wolt gjafakortaverslunina á netinu.
Sérsníddu gjafakortið þitt
Veldu landið þar sem nota á gjafakortið, veldu upphæð, veldu útlit og bættu við persónulegri kveðju.
Kaupa og deila
Gakktu frá kaupunum og sendu gjafakortið samstundis með hlekk, tölvupósti eða því skilaboðaforriti sem þú kýst. Viðtakandinn getur virkjað það strax.
Klár í að senda Wolt gjafakort?
Wolt gjafakort fyrir öll tilefni

Allt frá blómum og sætindum yfir í uppáhaldsmatinn þeirra; Wolt gjafakort leyfir þeim að velja nákvæmlega það sem þau lystir. Þetta er fljótleg og einföld afmælisgjöf sem er samt persónuleg – og þú sleppur við að giska.

Þegar einhverjum líður ekki sem best er gott að gera hlutina aðeins auðveldari. Með Wolt gjafakorti geta þau pantað mat, nauðsynjar eða hversdagsvörur beint að dyrunum.

Ertu að leita að hugmyndum að innflutningsgjöf? Allt frá skyndibita á flutningsdaginn yfir í að fylla ísskápinn af matvörum; Wolt gjafakort gerir flutningana auðveldari. Þetta er hagnýt innflutningsgjöf sem verður sannarlega notuð.

Wolt gjafakort er hugulsöm leið til að sýna þakklæti – fyrir vin, samstarfsfélaga, kennara eða hjálpsaman nágranna. Einföld þakkargjöf sem er alltaf persónuleg.
Svona virkjarðu Wolt gjafakortið þitt
Opnaðu hlekkinn
Smelltu á hlekkinn sem þú fékkst til að skoða gjafakortið þitt og persónulega kveðju.
Ýttu á Virkja
Ýttu á hnappinn „Virkja“ til að bæta gjafakortinu við Wolt-aðganginn þinn.
Byrjaðu að panta
Gjafakortið þitt er tilbúið til notkunar hjá veitingastöðum, matvöruverslunum og fleiri stöðum.
Gjafahugmyndir á síðustu stundu, græjaðar
Naumur tími? Sendu Wolt gjafakort með örfáum smellum. Veldu útlit á kortið og bættu við kveðju til að gera það persónulegt. Fullkomið fyrir afmæli, innflutningspartý, þakkargjafir og fleira. Engin sending. Engin bið. Afhent samstundis og auðvelt að deila í gegnum skilaboðaforrit.

Hugulsöm gjöf sem verður sannarlega notuð
Sýndu að þér þyki vænt um þau með einhverju hagnýtu og persónulegu. Wolt gjafakort leyfir þeim að velja úr veitingamat, matvöru, blómum og nauðsynjavörum – með afhendingu að dyrunum á innan við klukkustund. Gjafakort eru afhent á nokkrum sekúndum og tilbúin til notkunar strax.

Gerðu vel við allt teymið
Pantaðu 30 eða fleiri Wolt gjafakort í einu og sendu þau á teymið þitt eða viðskiptavini á nokkrum sekúndum. Veldu bara upphæðina og hversu mörg þú þarft, og þú ert klár í slaginn. Einföld leið til að fagna sigrum, umbuna fyrir vel unnin störf eða segja takk.

Algengar spurningar
Hvernig get ég keypt Wolt gjafakort?
Hvernig sendi ég Wolt gjafakort til einhvers?
Fyrir hvaða upphæð get ég keypt gjafakort?
Þarf ég Wolt-aðgang til að kaupa og nota gjafakort?
Get ég keypt gjafakort fyrir einhvern utan Íslands?
Get ég keypt fleiri en eitt Wolt gjafakort í einu?
Get ég keypt Wolt gjafakort fyrir sjálfan mig?
Hvernig virkja ég Wolt gjafakort?
Hvernig athuga ég stöðuna á Wolt gjafakortinu mínu?
Hvar get ég notað Wolt gjafakort?
Get ég notað Wolt gjafakort í fleiri en eina pöntun?
Get ég notað mörg gjafakort saman?
Hversu lengi gilda Wolt gjafakort?
Get ég keypt Wolt gjafakort fyrir teymið mitt eða fyrirtæki?
Kauptu Wolt gjafakort á netinu
Hin fullkomna gjöf á síðustu stundu. Sendu hana til fjölskyldu og vina, nær og fjær, og leyfðu þeim að velja nákvæmlega það sem þau vilja. Afhent samstundis, auðvelt að deila og tilbúið til notkunar með örfáum smellum.

