Sérstakar óskir
Sendu séróskir með pöntuninni og fáðu matinn nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann.
Bættu við séróskum með pöntuninni þinni í Wolt
Aðlagaðu pöntunina þína án fyrirhafnar. Hvort sem þú þarft að bæta við upplýsingum um mataræði, ofnæmi eða gera aðrar breytingar, þá er það einfalt með Wolt. Bættu bara við athugasemd og fáðu pöntunina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana, í hvert skipti!
Persónuleg þjónusta í einu skrefi
Slepptu símtölunum, útskýringunum og endurteknum fyrirspurnum. Settu allar þínar óskir í eina athugasemd sem fer beint til staðarins. Engin símtöl, engin misskilningur – bara þægileg aðlögun með örfáum smellum.
Pantaðu með öryggi
Hvort sem þú ert með ofnæmi, fylgir sérstöku mataræði eða vilt breyta réttinum, þá er það einfalt með Wolt. Þú þarft bara að segja frá þínum óskum þegar þú pantar og getur síðan andað rólega, vitandi að maturinn verður nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann.
Svona virkar þetta
Opnaðu Wolt á tækinu þínu
Sæktu Wolt appið eða farðu á Wolt vefsíðuna. Skráðu þig inn eða búðu til aðgang til að byrja.
Bættu í körfuna
Finndu og pantaðu það sem þig langar í frá veitingastöðum og verslunum í nágrenninu, hvort sem það er gómsætur matur, matvörur eða aðrar vörur.
Bættu við skilaboðum til staðarins
Bættu við séróskum áður en þú staðfestir pöntunina. Láttu vita um ofnæmi, sérstakt mataræði eða annað sem við þurfum að vita.
Fáðu pöntunina eins og þú vilt hafa hana
Hallaðu þér aftur og slakaðu á, pöntunin þín er á leiðinni – nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
Það eru smáatriðin sem skipta máli
Það er einfalt að senda séróskir með pöntuninni í Wolt. Hvort sem þú vilt breyta uppáhaldsréttinum þínum eða bæta einhverju við fyrir sérstök tilefni – við græjum það.
Uppgötvaðu fleiri #WoltLifeHacks
Að panta saman er einfalt! Njóttu ljúffengra máltíða með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum — allt afhent í einni ferð með einni greiðslu.
Vöruleitin okkar gerir þér kleift að finna nákvæmlega það sem þú þarft, hratt og örugglega. Minni tími í leit, meiri tími til að njóta þess sem þú elskar.
Haltu áfram þar sem frá var horfið. Wolt geymir körfuna þína svo þú getir alltaf haldið áfram að panta þegar þér hentar.
Veldu afhendingartíma sem hentar með því að panta fyrirfram. Pantaðu gómsætan mat, matvörur og fleira frá uppáhaldsstöðunum þínum.
Þarftu aðstoð með Wolt? Framúrskarandi þjónustuteymið okkar er til staðar með vingjarnlega aðstoð og skjót svör.